Ferða og uppátækjaklúbburinn F.U.K
Næsti staður sem á að skoða
Áhugaverðir tenglar
20.08.2011 00:24:53 / skemmtinefndin

Haustfundur

Eftir góða kvöldstund hjá Jónu, Önnu Birnu, Elfu og Þórey þar sem aðalfundur barst í tal greip okkur smávegis tryllingur og við skelltum okkur á að bóka íbúð fyrir okkur á Stykkishólmi 7.-9.október. Þetta var gert í þeirri von að við komumst allar þá, annars verður þetta bara djamm fyrir þá sem komast og við finnum nýjan tíma fyrir aðalfund.

Hér eru upplýsingar um íbúðina: http://www.vr.is/index.aspx?GroupId=476927&TabId=2410

» 15 hafa sagt sína skoðun

10.06.2011 12:23:39 / skemmtinefndin

Útilega - plan B

Halló, halló félagar!

Veður.is vefurinn er bilaður en skv. langtímaspá á yr.no á hitastigið á Ólafsfirði að vera -1 til 2 gráður næstu helgi. Og það á að snjóa. Á Siglufirði á þetta að vera örlítið skárra, 2-4 gráður.

Hvað segið þið um að gefa þessu séns eitthvað fram í vikuna en breyta um staðsetningu ef spáin heldur áfram að vera svona? Mér sýnist t.d. miðað við þessa spá að það ætti að vera 2-10 stig og sólskin í Skorradal...

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.06.2011 19:24:56 / thorey

Vika í gleðina

:d  Hvað segið þið svo ?  Er ekki bara málið að tjalda þar sem minnst verður frostið:$  ....brrrr..... En hverjir ætla að mæta og hvenær ( er að verða svo forvitin ), koma Jói og Jódís?, mæta allir á fimmtudagskvöld ? (nema kannski ekki Lára og co).  Hvað langar ykkur svo til að gera?  17. júní skrúðganga á Siglufirði, piknik og almennur fíflagangur í Héðinsfirði, sund á Ólafsfirði, rúntur um Eyjafjörð með viðkomu á stöku stað ???  Eða bara hvað ?? Sameiginlegur matur ( hvað á þá að borða og hver kemur með hvað?) á laugardagskvöld ( föstudagskvöld?) eða fara saman út að borða?  Gaman að vita hvað ykkur langar :lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.06.2011 00:31:23 / formadur

Í útilegu .... alveg að skella á

Jæja stelpur nú er þetta bara alveg að skella á..
hitastigið reyndar enþá svoldið kalt ,, en eiga ekki allir lopapeysur í massavís.. ullarteppi og ´húfur.. já í fleirtölu til öryggis..

Hafið þið eitthvað hugsað um þetta hvernig þið viljið hafa þetta. 
T.d hvar viljum við tjalda..
Er þetta ekki málið að skoða.. Siglufjörð.  Ólafsfjörð, gönginn,    Taka svo jafnvel eitthvað af eyjafirði ef að það er tími til þess...   Ég hef t.d aldrei komið inn í botn eyjafjarðar svo ég muni eftir..
Komið með hugmyndir endilega,, langanir ,, óskir,, gleði og gaman saman ..
vúhú... ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

01.01.2011 02:47:51 / formadur

Gleðilegt árið

Óska ykkur gleðilegs árs .. þakka fyrir það gamla og góða sem er að líða.
Sjáumst vonandi oftar á nýju ári.

kv Anna b

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2010 23:30:02 / skemmtinefndin

ÞÁ...ER...ÞAÐ...ÁKVEÐIÐ!!!

Er það ekki annars rétt skilið hjá mér? Helgina 8.-10. október skellum við okkur í sumarbústað einhversstaðar í Borgarfirðinum sem Þórey hefur boðist til að sjá um að panta... vinsamlegast leiðréttið ef ég er að fara með einhverjar rangfærslur.

Ákvað að stofna bara annan póst um þetta, það verður alltaf svo erfitt að lesa sig í gegnum fjöldann af athugasemdunum annars.

En þá er það bara þetta hvað við viljum gera og hvað við ætlum að borða.

Persónulega er ég eiginlega bara hlynnt því að gera sem minnst. Spila, spjalla, borða, liggja í bleyti í pottinum og kannski bara vandra eitthvað þarna í nágrenninu.

Varðandi fæði þá legg ég til að við náum einum classic brunch í ferðinni, vöfflur með ís, súkkulaðisósu og jafnvel bailey's kakó væri líka fín hugmynd. En kvöldmatur á laugardagskvöldi... við erum nú búnar að prófa ýmislegt... frá racklette til kjötsúpu. Held við höfum gert það áður en hvað segið þið um fajitas/tacos? Svo gæti það náttúrulega verið saltkjöt, svið, lambalæri eða kannski bara einhver sniðugur kjúklingaréttur í ofni... koma svo, tjá sig! Er alveg að detta af stað í heljarmikla tilklökkun! 

» 12 hafa sagt sína skoðun

05.09.2010 14:43:08 / skemmtinefndin

Aðalfundur

Sælir félagar!

Er að spá í að ríða á vaðið og koma með tillögu að dagsetningu fyrir aðalfund 8.-10. október.

Ég hef heyrt að það sé áhugi á að skreppa í sumarbústað og er búin að athuga með VR á þessum tíma. Eins og það stendur í dag væri hægt að fá bústað í Miðhúsaskógi fyrir 15.500 kr. eða íbúð á Akureyri fyrir 12.000 kr.

Hvernig er staðan hjá ykkur? Varðandi dagsetningu og hvað þið viljið helst gera?

» 17 hafa sagt sína skoðun

13.06.2010 11:54:22 / thorey

Hólmavík

Sælir félagar!  Hvað segið þið um kvöldmat á laugardagskvöldið, eigum við að hafa hann sameiginlegan eins og verið hefur ??  Ef við höfum það þannig, þá getum við Lára séð um að koma með kjöt og hún sagðist geta komið með kartöflur líka.  Ef þið hin skiptuð þá með ykkur rest.  Hvað segið þið um það ?
Eruð þið eitthvað farin að spá í hvað ykkur langar að gera þarna fyrir vestan??
Svo er bara að krossa putta og biðja um frábært veður, hlakka til að hitta ykkur og ekki er spenningurinn minni hjá grísunum. :d

» 9 hafa sagt sína skoðun

19.05.2010 23:07:04 / formadur

Í útilegu bráðum förum við ; )

Sælar skvísur
Var bara að pæla með tímasetningu með útileguna
Var ekki pælinginn að fara helgina eftir 17 júni ?
Komast ekki allir þá ..

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2010 23:58:57 / formadur

Dagsetning komin og hvað svo :)

Hlakka til að sjá ykkur..
Þið norðan snúllur ,, hvenær haldið þið að þið verið komnar í bæinn ?
Ætlum við að reyna að hittast eitthvað á föstudagskvöldinu ??

» 10 hafa sagt sína skoðun

19.01.2010 20:40:32 / formadur

Vorfundur 2010

hæhó
Nú styttist í vorið og gleðina
Hvenær viljið þið svo hittast í vorfund
og hvað viljið þið gera ?

» 37 hafa sagt sína skoðun

30.12.2009 14:54:11 / formadur

Gleðilegt ár

Gleðilegt ár mínar elskulegu vinkonur.
Takk fyrir frábært ár og vonandi verða þau mörg fleiri framundan.
Strax farin að hlakka til vorfundarins og útilegu í sumar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2009 22:54:12 / skemmtinefndin

Laugardagurinn 7. nóvember

Jæja, ég ætla að henda hér inn drögum að dagskrá!

10:30 - Afmælisbrunch í Hvannahlíð 5 (ég veit það á engin okkar afmæli þennan dag, en þið vitið við hvað er átt). MIKIÐ spjallað.
12:00 - Förum að hugsa okkur til hreyfings (og koma börnunum í pössun, ég gerði ráð fyrir að þau myndu borða með okkur). Þar sem við höfum löngum verið þekktar fyrir trúrækni, eða að minnsta kosti kirkjusókn í þessum ferðu okkar, legg ég til að við fáum leyfi til að gera stutt stopp í Sjávarborgarkirkju, ég verð að játa að ég hef aldrei komið inn í hana!
13:00-14:30 Sund í Varmahlíð. Já ég veit, gömul tugga en, það er alltaf fínt að bleyta aðeins í sér útvortis áður en maður byrjar á því innvortis.
14:30-15:30 Eftir sundið var ég að spá í að leggja til ís í KS Varmó, en þar sem maður getur aldrei verið viss um hvort hann sé til eða hvort ísvélin sé biluð vil ég breyta því og legg til að við förum í kaffi á Hótel Varmahlíð. Ég held að þá væri jafnvel sniðugt fyrir okkur að panta með smá fyrirvara og athuga hvort hún Þórhildur getur ekki hrist eitthvað ljúffengt fram fyrir okkur.
15:30-17:30 Fikrum okkur úteftir aftur með viðkomu hjá Pálínu á Gili, en ég held að við gætum allar haft gaman að því að skoða gallerýið hjá henni.
17:30-21:00 Nei, þetta var ekki tilviljun... og mér er full alvara þegar ég óska eftir því að fá að hafa kveikt á Arsenal leiknum. En það þarf hins vegar ekki að koma í veg fyrir að ég geti spjallað við ykkur líka, tekið þátt í kvöldverðarundirbúningi o.þ.h. Sem sagt, meiri matur og meira spjall. Þetta er líka tíminn sem við ættum að koma útileguumræðunni á dagskrá... Ég hef ekki viðbrögð frá neinum nema Þórey við breytingatillögum.
21:30-23:30 Tónleikar í Miðgarði með Ljótu hálfvitunum og Hvanndalsbræðrum. Og nei, ég hef heldur ekki fengið viðbrögð frá neinum nema Þórey við þessari tillögu minni. Hitt veit ég að mig langar að fara - mér finnst eiginlega synd að vera á svæðinu og láta þetta tækifæri til þess að fara á tónleika í Miðgarði með tveimur bráðhressum hljómsveitum! Ég hef ekki kynnt mér það en ég geri fastlega ráð fyrir að það verði sætaferðir af Króknum og frameftir.
23:30 -  og svo lengi sem við höldum út. Nú eru ýmsir möguleikar í boði. Við gætum málað miðbæ Sauðárkróks rauðan, eða bara haft örlítið hægara um okkur og hent okkur í pottinn heima hjá Þórey með einn kaldan og þannið lungun eins og okkur einum er lagið...

Jæja hvað finnst ykkur? Þetta er svona alla vega ein hugmynd! En svo gætum við líka t.d. tekið Lýtó dag. Það eru aðeins fleiri óvissuþættir en við gætum t.d. athugað hvort við gætum fengið hestasýningu á Varmalæk, látið opna fyrir okkur sundlaugina á Steinsstöðum, kíkt í kaffi á Bakkaflöt, fengið einhverskonar handverkskynningu hjá Sigrúnu á Stórhóli... Skoðað kirkjuna á Mælifelli hehe, eða Goðdölum. Gengið fram í ábæ eða að Merkigili... En jæja, fyrstu drög alla vega komin!

Ég gleymdi náttúrulega að segja, Lára það er leitt að þú getir ekki verið með okkur allan daginn. En eins og þú bentir réttilega á þá erum við að verða vanar því. En hefurðu einhverja hugmynd um það hvenær þú gætir verið komin að hitta okkur?

» 11 hafa sagt sína skoðun

18.10.2009 22:41:19 / skemmtinefndin

Aðalfundur

Ég ákvað bara að skrifa nýja færslu hérna þar sem fólk var hætt að commenta á hinn póstinn... er t.d. ekki búin að fá nein viðbrögð við því hvað ykkur finnst um að kíkja á Hvanndalsbræður og Ljótu Hálfvitana í Miðgarði...

Ég veit að ykkur finnst ég mjög leiðinleg þegar kemur að þessu en þar sem mínir menn í Arsenal eru að spila þarna á laugardeginum þætti mér nú líka vænt um að hafa kveikt á sjónvarpinu yfir þeim leik (getum sleppt hljóðinu ef þið þjáist mikið fyrir það). Leikurinn byrjar 17:30 svo mér finnst svo sem líklegt að við værum komnar í Hvannahlíðina á þeim tíma til að græja kvöldið (eða jafnvel byrjaðar á kvöldinu!). Ég á ennþá eftir að leggjast aðeins yfir túristahugmyndirnar, en það kemur sko...

Annað sem ég held að við ættum að setja aðeins í umhugsun og ég veit að hefur eitthvað verið rætt innan hópsins er hvort að við eigum eitthvað að skoða annað fyrirkomulag um val á staðsetningu útilegu næsta sumars? Ein leið væri t.d. að allar settu sínar hugmyndir hér inn og við gætum rökrætt hverja staðsetningu fyrirfram (og maður þá haft kosningabaráttu fyrir sinn stað) og svo kosið um valkostina á aðalfundinum...


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.09.2009 15:41:34 / formadur

Aðalfundur FUK klúbbsins

Jæja skvísur
Hvernig viljið þið hittast í aðalfund ?
Hugmynd kom fram um daginn að hafa hann fyrstu helgina í nóv
hvernig hljómar 7-8 nóv hjá ykkur ?

Kíkka á partí plönin og förum að skipuleggja hvert við viljum fara
Hlakka til að heyra í ykkur .

kv Anna

» 29 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5